Kæri félagsmaður
Hugvíkkandi, félag áhugamanna um skynvíkkandi efni og meðferðir, býður til opins fundar fimmtudaginn 21. maí kl. 19:00 til 21:00 í sal Lífspekifélagsinns Ingólfsstræti 22.
Aðalástæðan fyrir fundinum er að kynna það sem hefur verið að gerast í félaginu undanfarið og hvað er framundan í starfseminni. Við höfum verið að móta nýja stefnu fyrir félagið, sem ákvarðar fyrir hvað við félagið stendur og hver gildi þess eru, og viljum við kynna þetta fyrir félagsmönnum og öðrum áhugasömum.
Á fundinum verða einnig kynntir fundir sem félagið mun halda reglulega:
- Integration-fundir, þar sem fólk getur komið og sagt frá reynslu sinni af hugvíkkandi efnum og fengið endurgjöf og ráðleggingar.
- Kynningarfundir, þar sem haldnir verða fyrirlestrar um málefni sem tengjast hugvíkkandi efnum og meðferðum.
Farið verður yfir nýlega forsetatilskipun Trumps, sem gæti flýtt verulega fyrir því að meðferðir með hugvíkkandi efnum verði löglegar.
Þá mun Ásdís Olsen kynna rannsókn sem hún vinnur að í samstarfi við Háskóla Íslands. Rannsóknin snýr að notkun Íslendinga á hugvíkkandi efnum og viðhorfum.
Eftir dagskrána verður opið spjall þar sem gestir geta rætt saman og borið saman bækur sínar.
Dagskrá
- Tónlistaratriði: Frímann Kjerúlf spilar á píanó
- Kynning á starfsemi Hugvíkkandi
- Stefnan
- Integration-fundir
- Kynningar-fundir
- Forsetatilskipun Trumps
- Rannsóknir á Íslandi
- Opið spjall
Verð
Fundurinn er ókeypis fyrir alla.
Hlökkum til að taka á móti ykkur í Lífspekifélaginu 🙏🏻
Stjórn Hugvíkkandi

