Stjórn Hugvíkkandi
Frímann Kjeúlf
Formaður
Frímann Kjerúlf býr yfir fjölþættri menntun á breiðu sviði sem spannar eðlisfræði, gervigreind, myndlist og tónlist.
Hann er nú í meistaranámi í Ecstatic Mysticism hjá AWE Foundation, sérhæft nám í skynvíkkandi meðferð (e. psychedelic therapy). Námið sameinar vestræna sálfræði, hugleiðsluhefðir og heimspeki, með áherslu á bæði náttúruleg og tilbúin skynvíkkandi efni. Lögð er áhersla á örugga meðferð, samþættingu og siðferðilega ábyrgð í starfi með umbreytandi meðvitundarástönd.
Hann stefnir á doktorsnám í Psychedelic Studies hjá AWE foundation, með áherslu á transpersonal psychotherapy og skynvíkkandi meðferðir með áherslu á rannsóknir.
Vilhjálmur Hlatalín
Varaformaður
Vilhjálmur er ráðgjafi/stuðningsfulltrúi á Legudeild BUGL. Hann hefur m.a. stýrt
tengslamiðraðri fjölskyldumeðferð og er í fjölskyldufagteymi BUGL.
Er með BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og Diploma í Studies in
Mindfulness frá Aberdeen háskóla.
Hefur einnig lokið mörgum námskeiðum og vinnustofum sem tengjast
meðferðarvinnu, m.a. Attachment Based Family Therapy – Advanced Workshop,
Fjölskyldubrúin, Workshop on Acceptance and Commitment Therapy for Children
and Parents, Certificate Program in Traumatic Stress Studies, Comprehensive
Training in Clinical Hypnosis and Strategic Psychotherapy, Integrating Somatic
Techniques in Therapy og MDMA-Assisted Therapy Education
Margrét Sara Oddsdóttir
Ritari
Nánari upplýsinga koma síðar.
Halldór Auðar Svansson
Gjaldkeri
Halldór Auðar Svansson er tölvunarfræðingur og varaþingmaður.
Héðinn Unnsteinsson
Varamaður í stjórn
Héðinn Unnsteinsson brennur fyrir breyttri og mannúðlegri nálgun í geðheilbrigðismálum. Að samfélag okkar vinni markvissar með styrkleika fólks og snúi markvisst frá ofuráherslu á hvers konar fráhvörf manneskjunnar. Að við búum betra og mannúðlegra geðheilbrigðiskerfi þar sem áherslur notenda leiða framþróun.
Héðinn er menntaður kennari og stefnumótunarsérfræðingur með meistargráðu í alþjóðlegri stefnumótun og stefnugreiningu frá Háskólanum í Bath á Englandi. Héðinn starfaði í Stjórnarráðinu árin 2007-2022. Héðinn hefur sinnt stundakennslu við stjórnmálafræði- og félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og í þjónandi forystu innan viðskiptafræðideild Háskólans á Bifröst.
Héðinn hefur undanfarin 30 ár starfað að geðheilbrigðismálum bæði byggt á eigin reynslu og sem sérfræðingur í stefnumótun í málaflokknum. Héðinn starfaði árin 2003-2010 sem sérfræðingur að geðheilbrigðismálum hjá heilbrigðisráðuneytinu og Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni (WHO). Héðinn átti frumkvæðið að Geðræktarverkefninu og Geðorðunum 10. Héðinn skrifaði bókina „Vertu úlfur“ sem m.a. lýsir reynslu hans af geðheilbrigðiskerfinu. Héðinn sat í stjórn Geðhjálpar 2013- 2015 og svo aftur frá 2019 sem varaformaður og sem formaður árin 2020-2023.
Sólveig Þórarinsdóttir
Varamaður í stjórn
Sólveig Þórarinsdóttir er stofnandi Sóla heilsuseturs, ráðgjafi og meðferðaraðili.
Hún er viðskiptafræðingur BSc. HR með meistaragráðu MSc. HÍ Í stjórnun og stefnumótun fyrirtækja. Menntaður jógakennari og Reiki heilari ásamt annarri þjálfun og vottun; RYT, ISTA, 40y of Zen, Practical Shamanism og Vipassana.
Sólveig er í Transpersonal Psychotherapy námi hjá AWE í S-Ameríku og að því loknu 2024 í Phd. í Psychedelic Studies í Ubiquity University. Hún er einnig í 5-MeO-DMT námi með áherslu á áfallaupplýsta umönnun hjá FIVE.
Helga Zoega
Varamaður í stjórn
Nánari upplýsingar koma síðar
Ásdís Olsen
Varamaður í stjórn
Ásdís Olsen (B.Ed og MA) hefur brennandi áhuga á faglegri meðferð með hugvíkkandi efni til úrvinnslu áfalla, til heilunar og aukinnar hamingju. Hún starfar nú við rannsóknir og þróun á meðferð með hugvíkkandi efnum. Hún lauk fyrri hluta MAPS meðferðarnámsins: MDMA-assisted psychotherapy for PTSD í mars 2024.
Ásdís er menntaður kennari og fjölmiðlafræðingur með meistarapróf í sjónvarpsþáttagerð frá Ohio University í Bandaríkjunum. Hún starfaði lengst af sem háskólakennari á sviði lífsleikni, fyrirlesari og kennari á sviði hamingjufræða, og sem þáttastjórnandi í útvarpi og sjónvarpi það sem hún fjallaði um hugðarefni sín með víðsýni að leiðarljósi.
Ásdís er einnig núvitundarkennari frá Bangor háskóla, jógakennari og Höfuðbeina- og spjaldhryggjar- meðferðaraðilar (Craniosacral therapy – CST) og dáleiðari. Hún hefur líka sótt fjölmörg námskeið á sviði núvitundar með samkennd og líkamsmiðaðri nálgun, námskeið í partavinnu (IFS), EMDR og sjálfsdáleiðslu.
Ásdís er í síma 898 9830 og með netfangið asdisolsen@gmail.com
Fyrrum stjórnarmeðlimir
Sigurður Hólm Gunnarssson
Formaður Hugvíkkandi (2022 - 2024)
Sigurður Hólm Gunnarsson var kjörinn fyrsti formaður Hugvíkkandi þegar félagið var stofnað árið 2022. Sigurður hætti sem formaður í desember 2024. Sigurur hefur lokið námi í Psychedelic-Assisted Therapy Training frá Integrative Psychiatry Institute (IPI). Námið er fyrir faglært heilbrigðisstarfsfólk sem vill veita meðferð með hugvíkkandi efnum. Sigurður hefur einnig lokið MAPS MDMA Therapy Training frá MAPS (Multidisciplinary Association for Psychedelic Studies).
Sigurður er iðjuþjálfi og sáttamiðlari og rekur ráðgjafastofuna Allir sáttir þar sem hann býður meðal annars upp á hugvíkkandi samtal. Í slíkum samtölum er farið yfir hvernig sé best að undirbúa sig fyrir að nota hugvíkkandi efni. Hvað ber að hafa í huga og hvað ber að varst. Ef viðkomandi hefur þegar notað hugvíkkandi efni er boðið upp á samtöl um hvernig best sé að vinna úr reynslunni.
Haraldur Örn Erlendsson
Meðstjórnandi (til febrúar 2025)
Haraldur Erlendsson er geðlæknir og starfar á stofu á höfuðborgarsvæðinu.
Auður Elísabet Jóhannsdóttir
Ritari (til febrúar 2025)
Auður Elísabet Jóhannsdóttir er hjúkrunarfræðingur og vinnur við stuðning og ráðgjöf fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur ásamt því að vinna á kvennadeild LSH.
Auður er í stjórn fagdeildar Krabbameinshjúkrunarfræðinga.
Hún hefur numið áfallafræði við HA, dáleiðslu, cranico-sacral, Jóga Nidra, IFS ofl.
Auður brennur fyrir því að hugvíkkandi efni og þá sérstaklega psilocybin verði tekið inn sem meðferðarúrræði við angist, kvíða og þunglyndi hjá krabbameinssjúklingum og í líknarmeðferð (e. hospice / end-of-life).
Sara María Júlíudóttir
Fyrrverandi formaður (desember 2024)
Sara María er stofnandi og eigandi Eden Yoga.
Hún er lærður jógakennari, markþjálfi, Cranio/ Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili og hefur lært Reiki-heilun og ýmsar aðrar heilunaraðferðir.
Sara er í mastersnámi og stefnir á phd í Transpersonal Psychotherapy.









